← News

Leggjum línurnar fyrir framtíð Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls

Published 17.02.2021 · Rut
<!-- wp:paragraph -->
<p>Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar, Snæfellsbæjar, Ferðamálasamtaka Snæfellsness, Minjastofnunar Íslands og Náttúrustofu Vesturlands unnið að endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Opinn rafrænn íbúafundur verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar kl. 17:30-19:30 í gegnum Teams. Fólk er beðið um að skrá sig á fundinn á&nbsp;<a href="https://ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/thjodgardurinn-snaefellsjokull/opinn-rafraenn-ibuafundur/">ust.is/svsnae</a>&nbsp;í síðasta lagi þriðjudaginn 23. febrúar.</p>
<!-- /wp:paragraph -->

<!-- wp:paragraph -->
<p>Á fundinum verður vinna við áætlunina kynnt og síðan munu fundarmenn geta tekið þátt í hópavinnu og lagt sitt af mörkum við stefnumótun Þjóðgarðsins. Á næstunni verða haldnir minni fundir með ýmsum samráðsaðilum. Fólk er hvatt til að mæta á skjáinn og taka þátt í umræðunni.</p>
<!-- /wp:paragraph -->
Uncategorized
Search

Enter a search term.