← News

Laust starf þjónustufulltrúa

Published 12.09.2024 · Rut

Umhverfisstofnun leitar að þjónustufulltrúa í 70% starf  í Snæfellsjökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn rekur gestastofur á Malarrifi og Hellissandi og viðkomandi mun starfa í nýrri þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Megin verksvið þjónustufulltrúa er þjónusta við gesti þjóðgarðsins.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með yfir hundrað náttúruverndarsvæðum. Eitt af okkar stærstu verkefnum í náttúruvernd er uppbygging innviða með bætt aðgengi, öryggi og verndun að leiðarljósi. Þjóðgarðurinn heyrir undir Umhverfisstofnun og mun þjónustufulltrúi vinna í teymi á sviði náttúruverndar þar sem áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu. Í boði er líflegt starf þar sem tækifæri verður til þátttöku í þróun á starfsemi gestastofa og þjóðgarðsins. Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Móttaka gesta, fræðsla og upplýsingagjöf

Þjónusta og afgreiðsla í gestastofum á Hellissandi og Malarrifi

Taka á mót hópum og sjá um leiðsögn um sýningu

Þátttaka í stefnumótun þjóðgarðsins og efling öryggismála

Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund

Menntun sem nýtist í starfi

Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur

Reynsla af þjónustustörfum er kostur

Áhugi á umhverfismálum og náttúruvernd er kostur

Þekking á þjóðgarðinum og nærsvæði hans er kostur

Tengiliðir

Hákon Ásgeirsson - hakon.asgeirsson@umhverfisstofnun.is - 5912000

Þóra Margrét Pálsdóttir Briem - thora.m.briem@umhverfisstofnun.is - 5912000

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags hafa gert.

Umhverfisstofnun er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Við búum yfir fjölbreyttri sérfræðiþekkingu og höfum tækifæri til að þróast í starfi, m.a. með virkri endurmenntun.
Við störfum í teymum, vítt og breitt um landið á 9 starfsstöðvum og eftir vottuðum gæðakerfum. Við erum með jafnlaunavottun, virka umhverfisstefnu og störfum samkvæmt Grænum skrefum, sjá graenskref.is.
Við leggjum áherslu á stafræna þróun og tekið er fagnandi á móti nýju fólki sem hefur þekkingu og áhuga á stafrænum lausnum. Í júní sl. voru samþykkt lög á Alþingi um breytingar á stofnanaskipulagi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Samkvæmt þeim mun Snæfellsjökulsþjóðgarður tilheyra nýrri Náttúruverndarstofnun frá næstu áramótum.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is.

Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Næsti yfirmaður þjónustufulltrúa er Hákon Ásgeirsson þjóðgarðsvörður sem veitir einnig nánari upplýsingar um starfið.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Starfshlutfall er 70%

Umsóknarfrestur er til og með 23.09.2024

Sækja um hér.

Uncategorized
Search

Enter a search term.