← News

Gestastofa í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli

Published 08.06.2003 · Rut
<!-- wp:paragraph -->
<p>Þann 8. maí var undirritaður samningur milli Umhverfisstofnunar og Menningarmiðstöðvarinnar ehf. á Hellnum. Umhverfisstofnun tekur á leigu húsnæði undir gestastofu í menningarmiðstöðinni.</p>
<!-- /wp:paragraph -->

<!-- wp:paragraph -->
<p>Í gestastofunni verður fræðslusýning um náttúru þjóðgarðsins og þar verða veittar upplýsingar um dagskrá og þjónustu í þjóðgarðinum. Samstarfsnefnd um stofnun þjóðgarðs á Snæfellsnesi gerði ráð fyrir að gestastofur yrðu tvær í þjóðgarðinum og var önnur fyrirhuguð á Hellissandi en hin á Arnarstapa eða Hellnum.</p>
<!-- /wp:paragraph -->

<!-- wp:paragraph -->
<p>Í menningarmiðstöðinni sem nú er að rísa á Hellnum er fyrirhugað að verði miðstöð upplýsingaveitu um ferðaþjónustu á Snæfellsnesi og Vesturlandi.</p>
<!-- /wp:paragraph -->
Uncategorized
Search

Enter a search term.